Booking systems made simple.
Bókanir, greiðslur og aðgangur á þinni eigin síðu.
Viðskiptavinurinn bókar og greiðir á vefsíðu stöðvarinnar, í þínu vörumerki. Entrify sér um kerfið á bak við.

Bókunarferlið eins og það birtist á vefsíðu stöðvarinnar.
Eiginleikar
Allt sem stöðin þarf, á einum stað
Bókanir
- Netbókanir
Viðskiptavinir bóka allan sólarhringinn á vef stöðvarinnar, án þess að þú komir nálægt því.
- Fastir tímar
Endurteknar bókanir fyrir þá sem mæta alltaf á sama tíma.
- Verðskrá
Verð er mismunandi eftir tíma dags, vikudegi og bás og reiknast sjálfkrafa.
- Staðarskjár
Skjár á staðnum sýnir hvaða básar eru lausir og hvað er bókað.
Tekjur og tryggð
- Áskriftir
Mánaðaráskrift með bókunarinneign sem endurnýjast sjálfkrafa og er innheimt af korti.
- Gjafabréf
Seld á netinu, gefin áfram og notuð sjálfkrafa í greiðsluferlinu.
- Afsláttarkóðar
Markviss tilboð fyrir rólega tíma, herferðir og eftirfylgni.
- Vildarhópar
Starfsmenn fyrirtækja og félagsmenn stéttarfélaga fá afslátt sjálfkrafa, án kóða.
Rekstur
- Aðgangsstýring
Hurðakóði fylgir staðfestingunni og opnar aðeins á bókuðum tíma.
- Starfsaðgangur
Hlutverk og heimildir svo hver starfsmaður sjái það sem hann þarf.
- Uppgjör og reikningar
Uppgjör, reikningar og færslur á einum stað fyrir bókarann.
- Tölur
Bókanir og greiddar tekjur dagsins, vikunnar og mánaðarins.
- Markaðssetning
Tölvupóstherferðir, markhópar og sjálfvirkar sendingar til viðskiptavina.
Þitt vörumerki
Kerfið er stillt að útliti stöðvarinnar. Allt sem viðskiptavinurinn sér er í þínu vörumerki.


Greiðslur og samþættingar
Tengt því sem stöðin notar nú þegar
Stöðin velur hvort greiðslur fari í gegnum Straum, Verifone eða Teya. Allar leiðir bjóða upp á það sama: kortagreiðslur, Apple Pay og Google Pay, í sama greiðsluferli.
Greiðsluveitur
Stöðin velur eina.
Veski
Í boði hjá öllum þremur.
Aðgangur
- brafa
Hurðakóðinn úr bókuninni opnar lásinn.
Fyrirtæki á Entrify
Stöðvar sem keyra bókanir, greiðslur og aðgang á eigin síðu.
Golfsvítan
Mulligan Golf
Keilir
Við höfum átt einstaklega gott samstarf við strákana við gerð og þróun nýju heimasíðunnar okkar. Þeir eru fljótir að bregðast við, svara öllum fyrirspurnum af mikilli kurteisi og eru alltaf tilbúnir að finna lausnir þegar eitthvað kemur upp. Það er greinilegt að þeir hafa mikinn áhuga á verkefninu og leggja sig fram um að hlutirnir virki sem best fyrir okkur. Samskiptin hafa verið einföld og þægileg og þeir hafa frá upphafi verið mjög móttækilegir fyrir okkar þörfum og óskum. Við erum mjög ánægð með samstarfið og getum hiklaust mælt með þeim.
Strákarnir hjá Kode eru með frábæra vöru og frábæra þjónustu. Entrify‑kerfið er töluvert skilvirkara en þau kerfi sem við höfum notað áður og þá hefur verið sérstaklega þægilegt að fá þá til að sníða kerfið nákvæmlega eftir okkar þörfum. Öll samskipti hafa verið mjög þægileg og ég get hiklaust mælt með þeirra þjónustu og hlakka til áframhaldandi samstarfs.
Það er eiginlega hálf pirrandi hvað það er auðvelt og skemmtilegt að vinna með Kode. Samskiptin eru alltaf einföld og góð, þjónustan persónuleg og það er stutt í lausnir þegar eitthvað kemur upp. Þeir eru fljótir að skilja hvað við erum að reyna að gera og enn fljótari að finna leiðir til að láta það ganga upp. Fagmennskan er alltaf til staðar, en sem betur fer aldrei á kostnað húmorsins. Einfaldlega frábært samstarf sem við hjá Keili getum hiklaust mælt með.
Þróum saman
Við erum ekki bara að þróa bókunarkerfi. Við erum að byggja upp framtíð golfreksturs á Íslandi – og við viljum byggja hana með ykkur.
Segðu okkur hvað Entrify á að gera næst. Styddu hugmynd frá öðrum eða sendu okkur þína eigin.
Ertu með stað sem tekur bókanir?
Sendu okkur línu og við setjum upp kerfið með þér.